Færsluflokkur: Samgöngur

Ljósameistara Reykjavíkur

Hvernig er með þessa blessuðu tölvu sem sett var upp til að stjórna umferðarljósum Reykjavíkurborgar. Það er alveg vitað að ef það er sett rusl inn í tölvu þá kemur rusl út úr henni líka. Kæru ljósameistarar sem setjið þetta rusl inn í þessa blessuðu tölvu. Hverni væri nú að aka um götur Reykjavíkur þar sem borgin er nú mjög falleg. Þið ættuð að aka þessar helstu stofnleiðir þar sem það er greinilegt að þið gerið það ekki. Akið stofnbrautirnar og kynnið ykkur ykkar eigið skipulag. Það er búið að kvarta yfir þessu en ekkert gerist. Hvert get ég sent reikninginn fyrir þeim óþarfa kostnaði sem ég verð fyrir af því að keyra um borgina. Þessi blessaða tölva ykkar kostar mig bara pening. Vakna nú og taka til hendinni. Stilla ljósin saman og allir brosa.Grin

Er ekki í lagi heima hjá þér

Þegar maður er að með barnið sitt í æfingaakstri er alveg ótrúlegt hvað maður lendir í. Það er stóskrítið hvað sumum dettur í hug og þykjast vera með bílpróf í þokkabót.

Í gærkvöldi var ég að aka með dóttir minni sem er að æfa sig og það var ekið niður á Hrafnistu í Reykjavík til að heimsækja móðir mína sem var mjög gaman. Síðan hófst heimferðin. Það var ekið út af stæðinu hjá Hrafnistu. Farið til hægri Brúnaveg og hægri beygja upp Dalbraut. Þar var stefnan tekin á Sæbraut. Þegar átti að taka hægri beygju inn á Sæbraut voru nokkrir bílar fyrir framan og einn fyrir aftan. Sá sem var fyrir aftan tók þá ákvörðun að vera fyrir aftan bíl sem er merktur æfingaakstur væri ekki við hans hæfi. Hann tók framfyrir okkur og svínaði fyrir í beygjunni inn á Sæbrautina. Það var ekki að hún væri lengi að taka af stað heldur einhverjir aðrir kvillar sem hrjáðu manneskjuna sem þarna ók. Ég var mikið að spá í að setja inn númer ökutækisins en ákvað að gera það ekki. Fólk sem ekur svona á ekki að hafa leyfi til þess að leika sér á götum borgarinnar og valda öðrum hættu. Þessi aðili sem þarna ók á framvegis að taka strætó eða allavega ekki að vera undir stýri. Vinsamlegast haltu þig bara heima.


Ljósin á gatnamótum Reykjavíkurborgar

Það er með þessi blessuðu ljós á gatnamótum í Reykjavík.

Það á að vera einhver tölva sem stýrir öllu kerfinu í Reykjavík.

Þegar ekin er Sæbrautin niður  í bæ er alveg óskiljanlegt hvernig hægt er að stilla þetta svona illa saman.

Ég tók sérstaklega eftir þessu um daginn þar sem dóttir mín er með æfingaleyfi í akstri og ég er að æfa hana.

Við fórum Sæbrautina niður í bæ og hún þurfti að stoppa á hverjum og einum ljósum.

Þar var jafnframt olíuflutningabíll sem stoppaði á 3 ljósum en svo jók hann hraðann til að ná rest.

Reykjavíkurborg er semsagt með þessu að hvetja til hraðaaksturs.

Hvað haldið þið að það kosti þjóðfélagið ef þarf að stoppa á öllum ljósum og sérstaklega stórir bílar.

Ég tók enn betur eftir þessu þegar ég sat í bílnum hjá dótturinni. Hún horfði bara á mig og sagði „ég verð að keyra á réttum hraða“


Hugsum áður en við flautum

Í gær mánudag var ég á leiðinni heim sem er nú ekki merkilegt. En þegar komið var inn á aðrein frá Reykjanesbraut og upp á brúna sem tengir Kópavog og Breiðholt saman var önnur akreinin lokuð sökum malbikunarframkvæmda. Umferðin hægði að sjálfsögðu á sér eins og við er að búast og maður dokaði við. Skyndilega byrjar daman fyrir aftan að flauta. Það skilaði nú engu. Stuttu síðar var aftur flautað þar sem komið var gult og að verða grænt ljós. Hún var greinilega að flýta sér en umferðin gekk ekki hraðar þó flautað væri. Síðan kom gult og rautt og aftur var flautað. Ég var farþegi í bílnum sem var fremstur og ég leit við. Þar var kvenmaður sem baðaði út höndunum sennilega vegna þess að bílstjórinn á bílnum sem ég var farþegi í hafði vit á því að stoppa þegar komið var gult/rautt. Ég gat nú ekki annað en baðað út höndunum á móti og brosað. Aumingjans manneskjan að vera að flýta sér svona. Síðan kom aftur grænt og allir fóru af stað en þegar komið var fram hjá skiltum sem lokuðu akreininni þá ætlaði daman að fara framúr en þá mættu henni skydilega valtari og fleiri tæki og hún hafði vit á því að hægja á sér og forðast þessar vinnuvélar. Ég vildi nú bara þakka þessum starfmönnum sem eru á þessum vinnuvélum fyrir sitt framtak. Ökum varlega og komumst heil heim var einhverstaðar sagt og á það vel við.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband