Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
19.1.2009 | 13:10
Ábyrgð ber enginn og allir í leiknum stikkfrí
Það ber enginn maður ábyrgð á neinu á Íslandi. Svo les maður grein í Morgunblaðinu eftir hana Agnesi á sunnudag. Hún Agnes er að fást yfir því að á borgarafundinu hefði Wade sagt eitthvað um Davíð Oddson. Agnesi fannst honum það ekki sæmandi. Finnst Agnesi það sæmandi sem Davíð Oddson sagði í Kastljósi og finnst henni það sæmandi þegar Geir kemur og segir ekki neitt. Nei Agnes, þú verður nú að fara að vakna af þessum væra svefni. Engillinn þinn sem er Davíð og svo kemur Geir með skottið lafandi að þeir eru löngu búnið að syngja sitt síðasta. Þú getur ekki verið að skammast yfir þessum hagfræðingi þegar Davíð og Geir svara heiminum eins og þeir hafa gert. Agnes, reynsu nú að sjá hlutina í réttu ljósi en ekki alveg blind.
Ábyrgð á efnahagshruninu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2009 | 23:04
Er þetta sagan endalausa
Það er sama hvað er hlustað á og hvaðan það kemur, allir eru að bulla ótrúlega mikið og halda að þeim sé trúað. Það er bullið í Geir sem er farið að vera þreytandi. Þessir kvenbankastjórar og þetta virðist vera sagan endalausa. Þegar er skoðað aftur í tímann hve allt var flott á að líta. Sjá eftirfarandi viðtal.
http://vefmidlar.visir.is/VefTV/?channelID=&programID=b2fab606-e8f9-4500-a4d9-15008d8978da&mediaSourceID=4b8342d2-6d57-4144-8b62-3d3067588513
Kreppan getur dýpkað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2009 | 21:12
Er ríkisstjórnin að viðurkenna eitthvað sem við eigum ekki skilið?
Fresturinn að renna út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.12.2008 | 12:43
Er ekki kominn nægur kostnaður í þetta mál
Jón Ásgeir: Ekki sama hver á í hlut | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.12.2008 | 22:25
Skera niður ferðasjóð ráðherra og þingmanna
12.12.2008 | 14:40
Veljum Íslenskt og gerum betur
Þegar við veljum Íslenska framleiðslu er verið að gera margt fleira í leiðinni en einungis að versla því það kemur svo margfalt inn í kerfið um leið. Þá er greitt fyrir vöru með pening sem skilar sér út í laun til þess sem vinnur við framleiðsluna. Íslensk framleiðsla er að skila til þjóðfélagsins pening sem fer í gegnum kerfið á margan hátt. Því er það aðdáunarvert að vinnustaðir sem eru að framleiða og um leið að útvega þeim vinnu sem eiga erfitt með að fá vinnu annarstaðar. Þessir vinnustaðir eru út um allt land og er hægt að sjá þá á heimasíðnni hlutverk.is. Sá stærsti þeirra er Múlalunduren þar er unnin vinna af mörgu tagi. Þar er um að ræða pökkun á ýmsu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Eins og staðan er í dag er erfitt að fá næg verkefni en það hefur verið þannig að erfitt hefur verið að klára allt sem hefur þurft að gera fyrir jólin. Það eru þrengingar í þjóðfélaginu og verðum við öll að standa saman í því að beina verkefnum á þessa vinnustaði ef möguleiki er á því. Í Múlalundi eru framleiddar möppur og er sennilega vinsælast EGLA bréfabindi. Síðan eru framleiddar möppur úr plasti þar sem hráefnið kemur á rúllum hingað til lands og það er sneitt niður eftir kúnstarinnar reglum og settur pappi innan í þær og plastið soðið utan um möppuna og að lokum eru þær járnaðar. Vinnuferlið við plastmöppur frá Múlalundi er að skila 4 til 5 mönnum vinnu þannig að þegar ein mappa eða einn kassi af möppum frá Múlalundi er seldur þá er sú sala að skila miklum verðmætum til þjóðfélagsins. Þarna er framleiðsla sem skilar sér margfalt fyrir utan það að síðan er einhver einstaklingur sem að lokum kemst aftur út á vinnumarkaðinn vegna þess að þú keyptir eina möppu sem er framleidd í Múlalundi. Þessi eina mappa skilaði 5 manns vinnu, einn þeirra komst út á hinn almenna vinnumarkað og sá einstaklingur lenti kannski í slysi á sínum tima og er búinn að ná sér að fullu, hættur að taka inn meðul, hættur á styrkjum. Hann er orðinn starfsmaður á hinum almenna vinnumarkaði.Húrra við völdum Íslenska framleiðslu og með því unnum við stóran sigur. Það er svo margt fleira sem er framleitt í Múlalundi og má þar nefna sérprentaðar möppur þar sem prentað er í prentsmiðju eitthvað útlit sem er hannað af t.d. auglýsingastofu. Þar eru möguleikar í útliti á möppu óþrjótandi og bara hugarflug hvers og eins sem fær að njóta sín. Þegar nóg er að gera í því að framleiða svona möppur er það að skila 5 stafsmönnum vinnu. Við framleiðum alskonar vasa, umslög og gatapoka af öllum stærðum og gerðum úr plasti og bjóðum upp á að merkja þá framleiðslu eftir óskum hvers og eins. Jafnframt er nokkur aukning í framleiðsu á mottum sem eru notaðar sem músarmottur og mottur sem eru notaðar til að hafa undir þegar fólk er að kvitta í verslunum á miðana úr posunum þegar greitt er með korti. Það er skemmtileg nýjung og hefur verið að aukast sérstaklega fyrir jól að fólk er að láta framleiða nokkur eða jafnvel eitt stykki af músarmottu með mynd af einhverjum úr fjölskyldunni eða einhverjum sem manni þykir vænt um. Framleiddir eru vasar fyrir geisladiska og er hægt að merkja þá. Vinnuumhverfi eins og í Múlalundi byggist upp á því að taka tillit, klappa á bakið og sýna hverjum og einum umburðarlindi og skilning, þannig að hverjum og einum líði vel, nái sjálfstrausti og virðingu fyrir sér og lífinu. Múlalundur verður 50 ára á árinu 2009 og er þá um að gera að fólk reyni eftir fremsta magni að versla við okkur. Þegar fólk hefur hugleitt hvernig hlutirnir hefðu þróast ef ekki hefi verið til Múlalundur og hvað hefði þá orðið um þá einstaklinga sem þangað hafa leitað. Bæði ríkið og Reykajvíkurborg hafa sparað hundruði milljóna á þessum árum sem Múlalundur hefur starfað.
Semsagt veljum Íslenskt og látum það vinna okkur öllum gagn um leið. Þannig náum við okkar markmiði sem er að Múlalundur nái að skapa sem flestum vinnu sem ekki fá vinnu annars staðar.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2008 | 21:01
Hver hefði trúað því að seðlabankastjórar væru enn við völd
Farið eftir ráðleggingum Seðlabankans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.11.2008 | 11:10
Verður ekki einhver að koma hreint fram?
Mikið fjallað um ummæli forsetans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2008 | 21:40
Vinna hratt og örugglega að hreinsun
Það er þannig ástandið í þjóðfélaginu að ekki verður séð annað en að hreinsa verði til og það hressilega. Þingmenn mega ekki segja sína meiningu því þá eru þeir ávíttir. Því fleiri sem talað er við þá eru fleiri sem eru grunaðir um að standa ekki rétt að málum. Nú er bara kominn tími til að vel verði hreinsað til í bankakerfinu og þeir látnir vinna þar sem byggja kerfið upp en ekki brjóta það niður. Við megum ekki við svona miklu rugli. Það er ekki liðið að óstarfhæfir aðilar séu látnir vinna að uppbyggingu bankanna þar sem þeir hafa ekki traust til þess. Það verða allir að hafa hreint borð sem vinna við þessa uppbyggingu. Aðrir verða að víkja. Fólk veit ekki í dag hvað það á að gera við sína peninga eða það sem það á eftir. Koma svo og vera snöggir.
Ekki hægt að taka aðra ákvörðun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2008 | 12:10
Ætla Íslendingar aldrei að læra? VAKNA
Álíta sig hæfa til að rannsaka syni sína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)